Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 179479
Samtals gestir: 18247
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 07:10:45

Færslur: 2007 Maí

23.05.2007 22:05

Hríslan og lækurinn



Þessi mynd þarfnast svo sem engra skýringa við en hún er tekin í sveitinni fyrir mánuði síðan þegar við hjónakornin vorum að ná okkur í nokkrar lerkihríslur.Fleiri myndir albúminu:Úr úmsum áttum.

22.05.2007 20:30

Við sjónvarpið.


Ég sé ekki fram á annað í ljósi vaxandi umræðu um slysatíðni í hestamennsku, að Íslenski hesturinn verði kominn með öryggisbelti og fallvarnarbúnað fyrir árslok.

21.05.2007 22:40

Brugðið á leik



Þetta er sennilega með fyrstu popphljómsveitum Stöðvarfjarðar en þessi mynd er tekin á góðum degi á lóðinni fyrir framan Ásbrún. Í fremstu röð eru,pabbi Nanna Jóns og Jonni í Ásbrún. Kjartan Guðjónsson stendur aftan til með konu sem ég kann ekki að nefna.

17.05.2007 21:57

Góður dagur


 Á svona dögum hellist yfir mann yfirnáttúruleg þörf til kynda grillið og hlaða á það stórsteikum og öðru fíneríi sem ég og gerði.Stóð ég úti á svölum í góða veðrinu,grillaði og naut þess að vera til.Ég sé fram á gott og snjólétt grillsumar.

09.05.2007 17:27

Sumarauki



Svona í tilefni dagsins sem er hálf kuldalegur birti ég þessa mynd, en mynd þessi er frá smábæ í Kanada,bæ sem ég ók daglega í gegnum til að komast í vinnuþjálfun.
Annars er mér vel heitt,er að ryksuga,þvo og bóna. Á bara eftir að fara út og strjúka af gluggarúðunum og gefa kettinum sem er hálf fúll þessa stundina,finnst illa vegið að heimilisfriðnum.

06.05.2007 17:53

Heimir SU 100



Þetta er Heimir sem gerður var út frá Stöðvarfirði á gullsíldarárunum.Það er eftirsjá af þessum gömlu bátum sem enduðu margir ævina undir rifjárninu líkt og þessi gerði.

01.05.2007 14:25

1.Maí



Til hamingju með daginn í dag.
  • 1
clockhere