Flettingar í dag: 103
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 178918
Samtals gestir: 17998
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 22:05:14

Færslur: 2008 Október

28.10.2008 22:08

Fokið í flest skjól.



Það er að verða hálf snubbótt klæðningin á Sunnuhvoli en í veðurhamnum síðastliðna nótt fór  dágóð spilda af norðurveggnum eins og meðfylgjandi mynd skýrir frá. Ekki var ástandið skárra í nágrannabyggðinni sem og sést á myndinni efst uppi.  Flaggstöngin í Brynju hefur lagt sig upp að húsinu og tekið hluta af veggnum með sér.

24.10.2008 00:20

Fleiri höfðingjar.



Hér kemur mynd sem tekin er suður í Breiðdal og sýnir að ég held stjórnarmeðlimi Kaupfélagsins á góðri stund,allir sem einn í sínu besta pússi. Ég þekki sum andlitin og væri gaman fá innlegg frá ykkur í púsluna.

15.10.2008 18:19

Þekkiði þessa höfðingja?

Fékk þessa senda fyrir stuttu og getiði nú.

09.10.2008 12:57

Dögun.



Ég skelli þessari mynd inn aftur, bara til að minna á að þrátt fyrir allt kemur sólin alltaf upp aftur.

04.10.2008 01:30

Best



að skella á einni hrímkaldri vetrarmynd svona í tilefni þess að bráðum kemur ekki verri tíð með snjófönn í haga..
  • 1
clockhere