Flettingar í dag: 128
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 187
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 179710
Samtals gestir: 18352
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 16:58:28

Færslur: 2008 Desember

24.12.2008 16:54

Gleðileg jól.



Gleðileg jól og gott og farsælt nýár.


23.12.2008 03:23

Í tilefni dagsins..



setti ég þessa mynd inn því  á þessum degi rennur hvað einna mest af skötu og tindabykkju um maga landsmanna. Því er tilvalið í leiðinni að óska sjómönnum sem eru að binda skip sín við bryggju gleðilegrar jólahátíðar.Þeir hafa verið að gera góða hluti undanfarið og hafa öll skip verið að skila met aflaverðmæti undanfarið.
 Mér er það ofarlega í huga þegar ég skrifa þessar línur að jólafiðringirinn fór að gera vart við sig um miðjan november þegar ég var togarakall. Farið að taka frá góðar tindabykkjur og barða í gríð og erg þar til maður var öruggur með að hafa fengið nægan skammt. Þá var sett í kæsingu á millidekkinu og látið gera sig. Þegar líða tók á og lítið var að gera á næturtoginu og skatan tilbúin,var oft tekinn til góður pottur í eldhúsinu og elduð góð máltíð og lyktin sveif um allt skip með þeim afleiðingum öll frívaktin vaknaði fyrr en venjulega. Myndin er af Brimnesi og sést í hluta af Þerney og er tekin í vor er við feðgar vorum á okkar venjulega hafnarrölti.

GLEÐILEGA SKÖTU.

09.12.2008 12:19

Svona er lífið.



Þessa mynd tók Kristín nú fyrir stuttu og verður þetta jólamyndin í ár hvað sem hver segir og hana nú. Svo vikið sé að öðru þá hélt gallerí Snærós upp á 20 ára afmæli sitt um síðustu helgi með sýningu á verkum eftir ýmsa listamenn og var vel að henni staðið og litu margir inn til að skoða. Þegar ég kom heim fór ég að glugga í mína dagbók og komst að því að á þessum degi hafði ég startað dagbókinni sem er varla hægt að kalla dagbók lengur,kannski árbók en hér að neðan birtist hluti af þeirri færslu....

                             6/12 1988  

Gallerí Snærós í eigu Sólrúnar og Rikka var opnað í dag og var mikið um dýrðir. Ég kom við þarna áðan og skoðaði ýmsa gripi sem þarna voru á boðstólum og leist vel á.Í einni hillunni tróndi kötturinn Prins sem var að vísu ekki með verðmiða en Kári sagði að hann kostaði 8000 krónur með bjöllunni sem hann taldi að væri þó nokkur dýrgripur út af fyrir sig.
Það hefur verið lítið um vinnu undanfarið þar sem togararnir hafa siglt með aflann í allt haust. Síldin er líka búin og búið er að segja upp öllu starfsfólki hjá HSS vegna þess að fyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots.Horfurnar eru sem sagt ekki góðar.Við höfum verið að vinna 3-4 daga í viku,eftir því hvað trillurnar afla vel þennan og þennan daginn.Þær hafa aflað mjög vel í haust og hefur verið mikið að gera hjá Færabak sem er með flestar trillur á sínum vegum.
 Það hefur verið fallegt veður í dag,nokkuð kalt og stjörnurnar glampa á himninum. Útvarpið var rétt í þessu að segja frá andláti söngvarans, Roy Orbinson en hann mun hafa látist í bílslysi fyrir stuttu síðan.

Svo mörg voru þau orð, vona að þið hafið gaman af þessu.


                             





01.12.2008 14:17

Aðventan.



 

  • 1
clockhere