Sunnuhvolsannáll

Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 39
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 202494
Samtals gestir: 51581
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:49:56

09.05.2012 14:31

Heimir SU.


Hér gefur að líta skemmtilega mynd sem tekin er um borð í Heimi SU 100 er þeir sigldu með saltfisk til Noregs á sjöunda áratug síðustu aldar. Þarna eru þeir félagar Jóhann Páli og Kjartan Vilbergsson á dekkinu. Einhverjir eru þarna uppi á hvalbak sem ég veit ekki hverjir eru.

09.03.2012 20:55

Björgvin EA.


Þessa mynd tók Arnar Snær af Björgvin EA frá Dallas á toginu í Reykjafjarðarál í gærdag. Mér skilst að þetta fallega skip sé á leið úr landi og verði gert út af Spánverjum í framtíðinni. 

29.02.2012 14:05

Siglt með ströndum.


Þessa mynd tók Kristmundur Þorleifsson um borð í Hoffellinu fyrir stuttu síðan er þeir voru að koma með enn einn loðnufarminn til Fáskrúðsfjarðar og gefur hér að líta Stokksnes og Eystrahorn. Þetta er ein af mörgum frábæru myndum sem hann á í safni sínu sem er orðið all mikið.

18.02.2012 14:38

Svona var það 67


Ég er nýbyrjaður að skanna inn myndir úr safni foreldra minna sem er æði mikið og margir gullmolar leynast þar eins og þessi mynd sem er tekin í kringum 1967 og sýnir hvernig útsýnið var frá mínum bæjardyrum  á þessum tíma.
  • 1
clockhere

Um mig

Nafn:

Sigurjón Snær Friðriksson

Farsími:

Grár með hvítum tökkum

Afmælisdagur:

17.Mars

Staðsetning:

Stöðvarfjörður

Heimasími:

Hvítur með gráum tökkum

Uppáhalds bíómynd(ir):

Nútíminn

Eftirminnilegast:

Þegar ég fæddist

Tenglar

clockhere