Flettingar í dag: 16
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 65
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 179314
Samtals gestir: 18155
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 04:03:46

09.12.2008 12:19

Svona er lífið.



Þessa mynd tók Kristín nú fyrir stuttu og verður þetta jólamyndin í ár hvað sem hver segir og hana nú. Svo vikið sé að öðru þá hélt gallerí Snærós upp á 20 ára afmæli sitt um síðustu helgi með sýningu á verkum eftir ýmsa listamenn og var vel að henni staðið og litu margir inn til að skoða. Þegar ég kom heim fór ég að glugga í mína dagbók og komst að því að á þessum degi hafði ég startað dagbókinni sem er varla hægt að kalla dagbók lengur,kannski árbók en hér að neðan birtist hluti af þeirri færslu....

                             6/12 1988  

Gallerí Snærós í eigu Sólrúnar og Rikka var opnað í dag og var mikið um dýrðir. Ég kom við þarna áðan og skoðaði ýmsa gripi sem þarna voru á boðstólum og leist vel á.Í einni hillunni tróndi kötturinn Prins sem var að vísu ekki með verðmiða en Kári sagði að hann kostaði 8000 krónur með bjöllunni sem hann taldi að væri þó nokkur dýrgripur út af fyrir sig.
Það hefur verið lítið um vinnu undanfarið þar sem togararnir hafa siglt með aflann í allt haust. Síldin er líka búin og búið er að segja upp öllu starfsfólki hjá HSS vegna þess að fyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots.Horfurnar eru sem sagt ekki góðar.Við höfum verið að vinna 3-4 daga í viku,eftir því hvað trillurnar afla vel þennan og þennan daginn.Þær hafa aflað mjög vel í haust og hefur verið mikið að gera hjá Færabak sem er með flestar trillur á sínum vegum.
 Það hefur verið fallegt veður í dag,nokkuð kalt og stjörnurnar glampa á himninum. Útvarpið var rétt í þessu að segja frá andláti söngvarans, Roy Orbinson en hann mun hafa látist í bílslysi fyrir stuttu síðan.

Svo mörg voru þau orð, vona að þið hafið gaman af þessu.


                             





clockhere