Flettingar í dag: 124
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 296
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 280115
Samtals gestir: 28244
Tölur uppfærðar: 21.9.2024 05:00:56
14.07.2007 00:05
Skrúðurinn.
Þessi mynd var tekin í góða veðrinu í dag og er engu líkara en eldgos sé hafið í Skrúðnum.Annað eins getur nú skeð.
Skrifað af Sigurjón
10.07.2007 22:31
Snæhvammur
Þetta er Snæhvammur í Breiðdal eins og hann leit út í kringum 1940 eða þar um bil.
Þegar ég rakst á þessa mynd í safninu mínu,fór ég að hugsa um allar sögurnar sem mamma sagði okkur krökkunum af ýmsum atburðum sem áttu sér stað í hennar æsku.
Á styrjaldarárunum kom oft fyrir að Þýskar flugvélar komu fljúgandi upp að ströndinni og gerðu usla á ýmsum stöðum,skjótandi á hitt og þetta og má nefna Kambanesvita sem fékk vænar kúlnagusur yfir sig.
Eitt sinn kemur ein flugvél upp að Kambanesinu, flýgur hún inn með norðurfjallinu og stefnir á Snæhvammsbæinn,lækkar flugið og rennir sér rétt framhjá eins og þeir væru að athuga eitthvað og má vera að vindrafstöð sem var í byggingu hafi vakið áhuga þeirra.Mamma sagði mér að öll fjölskyldan hafi staðið lömuð af skelfingu úti á hlaði og beðið þess er verða vildi en skyndilega hækkar hún flugið, tekur stefnu á Breiðdalsvík og skýtur á Hamarshúsið eins og kunnugt er. Fólkið á bænum sagði oft í gamni seinna meir, að Doddi Móðurbóðir minn hefði bjargað því að ekki fór í verra,því skömmu áður hafði hann málað myndarlegan hakakross á skemmudyrnar sem blöstu trúlega við Þjóðverjunum þegar þeir flugu hjá.
26.06.2007 12:51
Sótt á gömul mið.
Þarna er gamall Stöðfirðingur í fullu fjöri á veiðum út af Austfjörðum. Trausti ÍS,held ég hann heiti nú í dag.
Skrifað af Sigurjón
21.06.2007 12:49
Siglt með ströndum
Áfram höldum við sjóleiðina og siglum framhjá Skrúðnum, með Snæfuglinn í baksýn.
Myndin er tekin af Arnari Snæ um borð í Bjarti NK í byrjun þessa mánaðar.
Ég mun á næstunni koma upp albúmi með myndum sem Arnar hefur tekið á sínum sjómennskuferli en hann er ávalt með myndavélina á lofti þegar hann sér eitthvað áhugavert. Arnar er að fara sinn annan túr á togaranum Múlabergi frá Ólafsfirði sem 2.vélstjóri og líkar vistin vel.
20.06.2007 16:56
Í dag.
Í dag er fullgott veður til að hanga inni og blogga,betra að sitja við lækinn og sóla líkama og sálargreyið.
Skrifað af Sigurjón
12.06.2007 01:09
Ein létt.
Þessi mynd er tekin um borð í Bjarti NK nokkrum dögum fyrir Sjómannadaginn af Arnari Snæ og spurt er um fjallahringinn.Hvaða fjöll sést í þarna?
Skrifað af Sigurjón
01.06.2007 13:28
Land fyrir stafni
Þessi mynd er tekin í góðu veðri í Mars 2006. Spurning dagsins gæti verið:Hvaða kennileiti grillir í á þessari mynd?..
Skrifað af Sigurjón
23.05.2007 22:05
Hríslan og lækurinn
Þessi mynd þarfnast svo sem engra skýringa við en hún er tekin í sveitinni fyrir mánuði síðan þegar við hjónakornin vorum að ná okkur í nokkrar lerkihríslur.Fleiri myndir albúminu:Úr úmsum áttum.
22.05.2007 20:30
Við sjónvarpið.
Ég sé ekki fram á annað í ljósi vaxandi umræðu um slysatíðni í hestamennsku, að Íslenski hesturinn verði kominn með öryggisbelti og fallvarnarbúnað fyrir árslok.
21.05.2007 22:40
Brugðið á leik
Þetta er sennilega með fyrstu popphljómsveitum Stöðvarfjarðar en þessi mynd er tekin á góðum degi á lóðinni fyrir framan Ásbrún. Í fremstu röð eru,pabbi Nanna Jóns og Jonni í Ásbrún. Kjartan Guðjónsson stendur aftan til með konu sem ég kann ekki að nefna.
17.05.2007 21:57
Góður dagur
Á svona dögum hellist yfir mann yfirnáttúruleg þörf til kynda grillið og hlaða á það stórsteikum og öðru fíneríi sem ég og gerði.Stóð ég úti á svölum í góða veðrinu,grillaði og naut þess að vera til.Ég sé fram á gott og snjólétt grillsumar.
Skrifað af Sjonni
09.05.2007 17:27
Sumarauki
Svona í tilefni dagsins sem er hálf kuldalegur birti ég þessa mynd, en mynd þessi er frá smábæ í Kanada,bæ sem ég ók daglega í gegnum til að komast í vinnuþjálfun.
Annars er mér vel heitt,er að ryksuga,þvo og bóna. Á bara eftir að fara út og strjúka af gluggarúðunum og gefa kettinum sem er hálf fúll þessa stundina,finnst illa vegið að heimilisfriðnum.
Skrifað af Sjonni