Flettingar í dag: 41
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 179436
Samtals gestir: 18219
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 02:51:21

Færslur: 2007 Mars

28.03.2007 21:02

Kvöldtónar


 Það leynir sér ekki að sumarið er að ganga í garð með sunnan þey og kröftugum fuglasöng snemma á morgnana.Lóan er komin og gæsakvak heyrir maður líka á stundum sem gleður mig óstjórnlega og fæ ég alltaf vatn í munninn þegar ég heyri þeirra fagra söng og sé fyrir mér borð hlaðið villibráð ásamt fleira góðgæti.
Lóan er sögð góð líka en ég vil frekar heyra sönginn hennar.

26.03.2007 22:46

Af hverju...........


Brotnar spaghetti prjónninn alltaf í þrjá hluta þegar hann bognar?



23.03.2007 22:27

Veðurfréttir.


Það var ljóta veðrið í nótt.Ég var nú bara hræddur.
Rútugreyið titraði og skalf, bílstjórinn var mæddur.

19.03.2007 00:00

Stöðfirsk fiskiskip



Hún Þóra Björk kom færandi hendi og stakk að mér myndum af Gunnari SU sem pabbi hennar átti  og Kristínu sem pabbi átti. Stakk ég þeim í fiskiskipaalbúmið ásamt fleiri myndum ef þið viljið kíkja.Mig vantar myndir af mestöllum trilluflotanum og myndi ég þiggja það með þökkum ef einhver vill senda mér.

17.03.2007 00:26

Balinn


 Ég heyrði fyrir skömmu að í ráði væri að útbúa sparkvöll á balanum okkar góða.Það það hefur alltaf verið mikill höfuðverkur hvað gera ætti við þennan blett.Sumir vildu byggja þarna ámeðan aðrir vildu gróðursetja þarna tré og enn aðrir útbúa íþróttaparadís.Mín tillaga er sú að hver fjölskylda eða jafnvel einstaklingur fái úthlutað vissum fermetrafjölda fyrir sig og framkvæmi þar eitthvað sem hún eða hann hafi áhuga á.
Það kæmi vel út og málið er dautt...

14.03.2007 22:59

Hornbjarg



 Mynd þessi er tekin við Hornbjarg á síðasta sumri af Kára Kristinssyni.

08.03.2007 23:30

Áfram stelpur


 

 Til hamingju með daginn og gangi ykkur allt í haginn.

 

07.03.2007 12:41

Út um gluggann minn




Þar sem sumarið er nú á næstu grösum,langar mig til að demba þessari mynd á skjáinn til að flýta aðeins vorkomunni sem allir eru farnir að horfa til býst ég við.Þessi mynd er tekin fyrir nokkrum árum
á gömlu konica vélina mína sem er nú í lamasessi vegna elli og töluverðrar brúkunar.Ég hafði gardínuna með vegna þess að mér þótti hún svo falleg og passa vel við þetta allt saman.
  • 1
clockhere