Flettingar í dag: 155
Gestir í dag: 84
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 179550
Samtals gestir: 18277
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 18:53:23

Færslur: 2008 September

27.09.2008 16:52

Það



telst til tíðinda þegar maður skreppur út með ruslið og þá er ekki úr vegi að taka með sér kodakinn og smella af nokkrum myndum í tilefni dagsins.Valið snérist um það hvort birta ætti landslagið eða myndina af gamla DBS fáknum sem lá í einum gámnum gjörsamlega búinn á því.Kemur kannski næst.

17.09.2008 13:01

Veðrið


Ég verð sennilega að ráðast í töluvert skógarhögg ef ég á að hreyfa bílinn út úr stæðinu á næstunni.Þegar ég leit út í morgun,lá stærðar tré fyrir aftan bílinn sem fellibylurinn Ike hafði lagt að velli eins og ekkert væri,tré sem hafði staðið af sér öll mannskæðustu veður sem gengið hafa yfir heimsbyggðina síðustu áratugi en svona er lífið.

12.09.2008 22:31

Veðurmyndavélin.

Einhvern tíma var ég spurður af hverju ég tæki aldrei mynd af rigningunni fyrst mér þætti hún svona skemmtileg. Hér er hún komin,setti smá skreytingu í gluggann til að hressa upp á myndformið.

07.09.2008 15:18

Brúðkaup




Það er nú orðið langt síðan ég kom eitthvað nálægt þessari síðu en ég vek athygli á nýju albúmi sem inniheldur myndir úr brúðkaupi Rósu og Zdenek. Njótið vel.
  • 1
clockhere