Flettingar í dag: 280
Gestir í dag: 83
Flettingar í gær: 259
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 279210
Samtals gestir: 28089
Tölur uppfærðar: 18.9.2024 09:58:10
Færslur: 2009 Mars
28.03.2009 11:17
Ótitlað
Það er aldeilis fínn dagur í dag og er ég að hugsa um að nota hann vel og rasskellast eitthvað út í buskann.Sem sé,verðað að heiman í dag,hafið það gott..
Skrifað af Sigurjón
17.03.2009 11:53
Orð dagsins.
Hefurðu fundið, hvað himneskt lífið er,
gleðina í elskunni, guð í sjálfum þér?
Hefurðu séð það sem heimurinn á,
eilífa fegurð, sem aldrei deyja má.
Ólína Andrésdóttir.
Skrifað af Sigurjón
12.03.2009 12:33
Húsið á hæðinni.
Þessi var tekin upp á grín um hánótt í myljandi snjókomu og bjóst ég ekki við miklum árangri en eitthvað varð úr þessu og fyrst svo varð þá kasta ég henni hér inn.
Skrifað af Sigurjón
08.03.2009 15:41
Góða Tungl.
Þegar maður er orðinn illa leiður á fannhvítri jörð þá horfir maður upp í loftið og sér þar sinn besta vin sem fær mann til gleyma sér örstutta stund.Þetta áhorf hefur ólík áhrif á manneskjuna,sumir standa rólegir aðrir liggja,sumir standa og góla á meðan aðrir hlæja að þessu öllusaman sem er hið besta mál. Tekið skal fram að ég stóð uppi í Tjarnardal og smellti þessari af eftir að hafa staðið utangátta í smá tíma. Hafið það gott.
Skrifað af Sigurjón
- 1