Antal sidvisningar idag: 91
Antal unika besökare idag: 24
Antal sidvisningar igår: 191
Antal unika besökare igår: 65
Totalt antal sidvisningar: 186282
Antal unika besökare totalt: 20613
Uppdaterat antal: 13.5.2024 06:33:20

Blogghistorik: 2012 Länk

31.05.2012 13:21

Síldin kom með sumarið til Stöðvarfjarðar.


Var fyrirsögnin á frétt Moggans sem sagði frá þessari fyrstu löndun sumarsins 1968. Heimir var með fyrstu skipum sem drifu sig á miðin norður við Bjarnarey og fékk þar fyrstur síld sem var um 400 tonn og sigldi með hana heim til Stöðvarfjarðar. Hér sést hann vera að leggja að bryggju eftir tæpa fjögura sólarhringa siglingu. Síldin var talin söltunarhæf. 

09.05.2012 14:31

Heimir SU.


Hér gefur að líta skemmtilega mynd sem tekin er um borð í Heimi SU 100 er þeir sigldu með saltfisk til Noregs á sjöunda áratug síðustu aldar. Þarna eru þeir félagar Jóhann Páli og Kjartan Vilbergsson á dekkinu. Einhverjir eru þarna uppi á hvalbak sem ég veit ekki hverjir eru.
  • 1
clockhere