Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 275
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 325536
Samtals gestir: 32104
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:20:43
18.03.2010 01:03
1988.
Þessi mynd er tekin 1988 held ég og sýnir Bankann svokallaða að hruni kominn eftir að það kviknaði í út frá ofni sem var þar inni í gangi og þar með var sögu þessa merka húss lokið. Brekkan er þarna á sínum stað en undir öðru nafni en það eru mörg skiltin búin að hanga þarna á veggnum með jafnmörgum nöfnum.Fjárhúsin í Bakkagerði eru þarna á hraðri niðurleið og Sigurjón Geirsson er greinilega byrjaður á að stinga upp kartöflugarðinn. Það er oft gaman að líta til baka
Skrifað af Sigurjón
12.03.2010 12:40
Smugan 93.
Þarna gefur að líta mynd sem ég tók 15.11.93 er við vorum nýkomnir á Kambaröstinni í Smuguna en fréttir höfðu borist um mikla veiði þarna við ísröndina. Það eina sem við höfðum út úr þessum túr voru 15 tonn í lest og upplifunin við að sjá þessa ísbirni sem sjást þarna á myndinni og voru sjálfsagt í svipuðum erindagjörðum og við.
Skrifað af Sigurjón
02.03.2010 13:07
Fyrir þá sem eru hættir í bransanum til að ylja sér við.
12.02.2010 13:34
12. Febrúar.
Þessi dagur hefur alltaf verið einn að hátíðisdögunum í fjölskyldunni enda afmælisdagur pabba sem hefði orðið 80 ára í dag hefði honum enst aldur til og litla krílið sem leit dagsins ljós á afmælisdaginn hans fyrir 40 árum og skírð var Solveig að kröfu pabba heldur upp á sinn merkisdag. Á þessum degi er minningin um pabba einna sterkust og fljóta upp á yfirborðið ótal góðar minningar sem aldrei dofna. Þessi mynd er tekin 1983 uppi í Fögruhlíð og sjást feðginin vera að búa sig í veiðitúr niður að vatninu í sól og blíðu eins og dagurinn er í dag hér í firðinum.
Skrifað af Sigurjón
07.02.2010 01:04
Bragi SU 210
Þetta er Bragi SU 210 og var keyptur til Breiðdalsvíkur árið 1961 af Braga h/f og Hraðfrystihúsi Breiðdælinga og mældist 90 brl. Smíðaður í Bandaríkjunum árið 1944 og jafnframt fyrsta fiskiskip sem Bandaríkjamenn byggja fyrir Íslendinga. Svanur Sigurðsson, eigandi Braga h/f var skipstjóri á þessum bát á meðan hann var gerður út frá Breiðdalsvík.Ég á nokkrar minningar tengdar þessu fleyi en pabbi var um tíma vélstjóri þarna um borð á meðan hann var að bíða eftir "Heimi" sem var í smíðum úti í Noregi og fór í nokkrar siglingar til Þýskalands eða Englands á þessu tímabili í misjöfnum vetrarveðrum. Man ég eftir í eitt skiptið höfðu þeir fengið á sig góða skvettu og lögðu að bryggju með laskaðan bátapall. Bát þennan þekkti maður á löngu færi því hann hallaði stöðugt tómur og skilst mér að bátar þeir er voru byggðir eftir þessari sömu teikningu hafi borið sömu einkenni. Mynd þessa fékk ég úr safni Þórs Jónssonar á Djúpavogi en Sigurður Þorleifsson tengdafaðir hans tók myndina í kringum 1962-64 og gaf honum. Það er auðséð á myndinni að þarna er aftur mastrið horfið en það brotnaði af í einu óveðrinu þegar Bragi var að koma inn til Breiðdalsvíkur úr veiðiferð. Endalok skipsins urðu þau að 1971 var það dæmt ónýtt og því sökkt út af Austfjörðum. Aðrar heimildir: Íslensk skip.
Skrifað af Sigurjón
04.02.2010 13:54
Kyrrlátt við fjörðinn.
Ég hef einhvern tíma birt þessa mynd áður sem er tekin á 7. áratugnum en finnst tilvalið að slá henni upp aftur svona í gúrkutíðinni. Þetta umhverfi er dálítið breytt í dag og sjást tvær bensístöðvar af þremur,gamla Kaupfélagið sem er nú horfið og haugur af timri fyrir innan Samkomuhúsið enda alltaf verið að byggja á þessum árum og þegar þessi mynd er tekin er flutningaskip nýfarið frá bryggjunni enda Sambandið á fullum snúningi og með allar legur smurðar á þessum tíma.
Skrifað af Sigurjón
29.01.2010 13:09
Hestamenn.
Þessi mynd er tekin úti á heyklifi árið 1983 þar sem nokkrir hestamenn komu saman áður en haldið skyldi af stað eitthvert út í náttúruna á þeysireið. Hér í forgrunni er Þorsteinn Kristjánsson eða Steini í Lyngholti eins og við Stöðfirðingar köllum hann. Um hina veit ég ekki,koma trúlega sunnan úr Breiðdal.
Skrifað af Sigurjón
19.01.2010 23:31
Kirkjur.
Ef þú lesandi góður ert í vafa um hvaða kirkja þetta er, skaltu kíkja á nýstofnað albúm sem tekur yfir margar kirkjur á landinu og er safn Kristínar,myndir sem hún hefur tekið á ferðum okkar um landið. Einnig er notast við myndir sem Jóhannes Sigurðsson faðir hennar smellti af á sínum ferðalögum. Njótið vel..
Skrifað af Sigurjón
10.01.2010 21:22
Vetrarganga.
Þegar gengið er eftir fjöruborðinu á þessum stað flögrar að manni sú hugsun að fátt geti skákað svona fallegu umhverfi. Hafið það sem allra best..
Skrifað af Sigurjón
23.12.2009 12:40
Gleðileg jól.
Gleðileg jól og gott og farsælt nýtt ár og megi nýja árið færa ykkur gæfu og gott gengi.
Fjölskyldan í Sunnuhvoli.
Skrifað af Sigurjón.