Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 275
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 325536
Samtals gestir: 32104
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:20:43
Færslur: 2006 Nóvember
27.11.2006 23:37
Smásaga
Eldhúsið er í rúst, ekkert eftir nema glugginn einn sem stendur jafn
þögull sem fyrr og heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist sínu
gamla og göfuga hlutverki.Varpar fölri birtu yfir geðsjúka menn sem
berjast um trylltir
og óðir,tæta niður bekki og borð og vaskurinn fær fría útsýnisferð út um gluggann með kranann sinn gamla og góða félaga í eftirdragi.Þegar mesta æðið rennur af sjúklinunum setjast þeir niður með kaffibollann sinn og ræða um gang himintungla og Framsókn.

Skrifað af Sigurjón
24.11.2006 22:54
Kvöldtónar
Dagurinn í dag er að niðurlotum kominn,enda búinn að vera að í allan
dag.Á morgun byrjar hann aftur með sömu látunum.Hver dagur er nýtt líf.
Skrifað af Sigurjón
16.11.2006 22:30
Veðurfréttir
Þetta er nú meira dómadags veðrið sem er nú búið að herja á okkur
landsmenn dag eftir dag og spáin er sú sama hvernig sem ég ligg á bæn
og bið um að hann fari nú að rigna.Það er ekki lengur eins gaman þegar
norðanáttin gnauðar við gluggann og var hér á árum áður.Þá sló út öllu
rafmagni,hlutur sem maður kunni vel að meta því datt út sjónvarpið og
stóð eins og illa gerður hlutur úti í horni og heimilisbragurinn
gjörbreyttist.Bækur voru dregnar upp, sumir reyndu að hlusta á snarkið
í gömlu gufunni og gátu verið furðu þolinmóðir við þá iðju.
Skólanum var aflýst, þó ekki væri nema í einn dag var það mikið fagnaðarefni fyrir ungar sálir sem öskruð af gleði og stukku út í snjóinn með tilheyrandi látum eins og þegar kúnum er hleypt út á vorin í fyrsta sinn.
Svona er lífið með sína kosti og galla....

13.11.2006 21:40
Hvar er botninn?
Nú er tími að lesa og lúra
loka augum góða stund
Þú mátt botna.
loka augum góða stund
Þú mátt botna.
Skrifað af Sigurjón
09.11.2006 21:07
Auðlindin
Þegar ég mætti til vinnu í morgun á Norðfirði lá Beitir NK við bryggju
með 1100 tonn og beið löndunar.Síldin er smá og fer nánast öll í
bræðslu.
Við löndunarbryggjuna var Guðmundur Ólafur að landa aðeins rýmri skammti.
Við löndunarbryggjuna var Guðmundur Ólafur að landa aðeins rýmri skammti.
08.11.2006 21:37
kaffi
Án þín væri lífið eins og lokuð bók,harðlæst.
Án þín kæmist ég ekki á fætur á morgnana né fengi mig til að líta framan í daginn.
Án þín mundi ég ekki vaxa og dafna.
Án þín gæti ég ekki sóað tímanum til einskis.
Stundum hata ég þig og fæ nóg af þér og vil helst ekki sjá þig meir.
En alltaf leita ég til þín aftur og tek þig í sátt.Því þrátt fyrir allt,elska ég þig af öllu hjarta
og þrái, hvern einasta dag..........

02.11.2006 23:50
Miðnæturraus
Þegar ég leit út um gluggann brá mér í brún,sá út um öll tún og langt
út í hafsbrún þar sem þar sem sólin hún feimin og rjóð eftir
næturgöltið gægðist yfir hafflötinn.Teygði mig eftir myndavélinni en
hún var steindauð.
Setti hlunkinn í hleðslu til að til að hafa hana til fyrir næsta morgun sem verður örugglega með gráan himin og enga sól.Ég tek þá bara mynd af rigningunni,á enga svoleiðis mynd að hafa upp á vegg til að prýða stofuna.
Dagurinn fór síðan í uppsetningu á hljóðkerfi fyrir grunnskólann en þar eru nú fáir iðnaðarmenn eftir enda
flestir útskrifaðir nema einn og einn trésmiður sem sést ráfa um á göngunum og er kannski bara að leita að útgöngudyrunum eða hefur sig ekki í að slíta tengslin við þennan vinnustað.Með þessum orðum kveð ég að sinni.

- 1