Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 79
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 179541
Samtals gestir: 18272
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 17:04:44

Færslur: 2007 Október

30.10.2007 22:48

Dekkjablús.








Þá er tími nagladekkjanna runnin upp og dekkjakallarnir standa kófsveittir inni á dekkjaverksvæðum og setja fimlega vetrardekkin á felgurnar, meðan viðskiptavinir bíða í nettum röðum fyrir utan.
Ég setti undir mig hausinn í morgun,braust niður í geymslu og fann vetrardekkin og smellti undir,engin biðröð nema kötturinn"Megas" sat rétt hjá og fylgdist með af athygli.
Sjálfsagt hefur honum verið hlátur í huga þó alvara væri í svip hans enda kunna kettir sig ávalt.Það passaði til,byrjaði að snjóa þegar ég var að herða síðasta boltann,lagði síðan af stað upp í Egilsstaði í ágætis færð en í bakaleiðinni var komið leiðinda slabb og ekki orð um það meir...

25.10.2007 15:26

Síldveiðar.



Þessari mynd stal ég af netinu rétt áðan og sýnir Hoffell SU á síldveiðum inni á Grundarfirði þann 21. Skipið kom síðan í fyrradag með 700 tonn til Fáskrúðsfjarðar.
Myndina tók Guðmundur Smári Guðmundsson.

19.10.2007 22:54

Á héraði.



Við Stína rifum okkur héðan úr rigningunni upp í Egilsstaði til ð ná í Arnar sem var að koma úr bænum í smá helgarleyfi.Þegar komið var uppeftir, blasti við þetta fallega sólsetur á vesturhimninum og ég sá mig tilneyddan að stoppa á flugvallarveginum, snara veðurmyndavélinni á loft og láta sólsetrið flæða inn um linsugatið.Það er oft fallegt á héraði og undanskil ég þá Breiðdalinn sem er einn fallegasti staður á landi þessu.

17.10.2007 00:50

Nýtt albúm.



Myndir frá afmæli Solveigar Sigurjónsdóttur hér í nýju albúmi.Gjörið svo vel og kíkið.

08.10.2007 16:58

Veðrið.



Þá er veðurmyndavélin komin í gott lag aftur og sendir nú frá sér tvær skýjamyndir

sem hún tók í góða veðrinu í dag.

02.10.2007 21:47

Hvað er þetta?



Þegar dagarnir styttast og vetur gengur í garð getur verið gaman að rýna út í hinn stóra
heim sem umlykur okkur.Eitt stjörnubjart kvöld sat ég úti á svölum með sæmilega öflugan stjörnusjónauka sem ég fékk að láni og tókst að mynda þennan hnött sem sést móta fyrir hér á myndinni.
En svona án gríns.Hvað dettur ykkur í hug að þetta gæti verið við fyrstu sýn.Þetta er getraun og vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem verður svo heppinn að detta niður á lausnina.
  • 1
clockhere