Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 79
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 179541
Samtals gestir: 18272
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 17:04:44

Færslur: 2008 Apríl

29.04.2008 21:32

Við höfnina



Ljósm:Arnar Snær.

24.04.2008 13:12

Gleðilegt sumar.



Gleðilegt sumar öll sömul.

20.04.2008 23:16

Allt í kafi.



Svona var umhorfs í kringum Fögruhlíð þegar við hjónin kíktum þar við í dag,allt í kafi og ansi vetrarlegt en veðrið með eindæmum gott og fallegt.

15.04.2008 21:10

15. Apríl.



Það var fallegt að horfa út á Breiðdalsflóann í dag enda veðrið í toppformi og verður væntanlega næstu daga. Fleiri myndir komnar inn í albúmið: Vetrarmyndir.

13.04.2008 14:52

Balaborg 20 ára.



Í gær voru liðin 20 ár frá því að leiksólinn Balaborg hóf  starfsemi sína og var í tilefni af því  opið hús þar gestir og gangandi komu og gæddu sér á ýmsu góðgæti sem foreldrafélagið stóð að með miklum sóma. Þeir félagar ,Karíus og Baktus voru sérstakir heiðursgestir og var þeim vel tekið.

12.04.2008 19:09

Inn-bærinn





Þessi mynd er tekin um páskana og sýnir innbæinn í allri sinni dýrð og ekki skemmir Hellufjallið sem trónir þarna og fer aldrei neitt, sem betur fer. LJÓSM: Arnar Snær.

07.04.2008 13:57

Prufa 1

 

Þetta er nú bara smá tilraun til að koma inn mynd hér á síðuna en það hefur ekkert gengið hingað til fyrr en í dag. Þessi mynd er tekin fyrir nokkrum árum,nýbúið að draga fánann að húni uppi á Hól,einhver átt afmæli eða bara verið að fagna sumarkomunni það árið, hver veit.

05.04.2008 23:54

Dagurinn í dag.

                                                                                           
                                                                                                                   










Hér fyrir ofan átti að vera mynd sem ég tók úti í góða veðrinu í dag en vegna þess að verið er að uppfæra 123 kerfið er allt í rugli og myndin verður bara að bíða betri tíma. Einnig sýnist mér myndaalbúmin hálf rugluð, fiskiskipin Stöðfirsku komin út um allan sjó og ekkert hægt að raða upp á nýtt en svona er þetta og enginn heimsendir það. Hafið það sem allra best.
  • 1
clockhere