Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 275
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 325536
Samtals gestir: 32104
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:20:43

Færslur: 2009 Apríl

28.04.2009 13:04

Breyttir tímar.

Þessi mynd er tekin fyrir allmörgum árum, daginn fyrir sjómannadag þegar Andey su frá Breiðdalsvík  var að koma úr góðri veiðiferð og lá inni á Stöðvarfirði meðan verið að vinna aflann úr síðasta halinu sem var víst allgott. Mig minnir að í þessum túr hafi skipið skákað öllum togaraflotanum og komið með mestu aflaverðmæti að landi í það skiptið. Skipstjóri var Einar Ásgeirsson. Þarna sést annar kappróðrarbátur Stöðfirðinga og róðrarsveit á æfingu greinilega boðið sér í kaffi og með því. 

 

24.04.2009 12:59

Vorboðinn ljúfi..

                                                       gæti einhver kallað þetta fley en ég hef engu við að bæta og vísa alfarið í bloggfærslu Þóru Bjarkar í Vinaminnis-þönkum, þar hún lýsir skipakomunni í máli og myndum.Góðar stundir...

20.04.2009 15:40

Vorkvöld við höfnina.



Eitthvað er nú farið að fjölga fiskiskipum sem leggja afla sinn upp hér á Stöddanum og er það vel.Hér er Narfinn í góðum félagsskap tveggja Hornfirðinga sem róa héðan.

18.04.2009 13:09

Gamla myndin.



Þessi mynd er tekin einhvern tíma á síðari hluta 8. áratus á seinustu öld er Þorgrímur í Sætúni fór með hóp af túristum í sýnisferð út í Papey.Í þessum hóp fyrir utan Þorgrím voru,Snæþór Kristinsson,Sigurveig og Þorleifur á Borgargarði Marta Vilbergsdóttir,Ingólfur Kristjánsson,einhver börn sem ég man ekki hver voru og ljósmyndarinn sem tók þessa mynd .Fleiri myndir voru teknar og verða þær settar inn síðar í myndaalbúm við tækifæri.Góðar stundir.

06.04.2009 21:54

Grýlukertabúðin



býður upp á fjölbreytt val á grýlukertum í ár enda hver að verða síðastur að ná sér í kerti þar sem vetur er á undanhaldi og vorkoman í nánd.Það er alla vega komið vor á þessari síðu og munu næstu myndir einkennast af fljúgandi gæsakjöti og fleiru sem tilheyrir vorkomunni.Góðar stundir.

04.04.2009 17:51

Ótitlað

Ég nenni ekki að skrifa neitt í dag sökum þess hvað veðrið er gott.Ég þakka samt fyrir kaffið í Rauðakross húsinu sem boðið var upp á í tilefni þess að verið var að opna verslun í húsnæðinu...
  • 1
clockhere