Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 55
Gestir í gær: 22
Samtals flettingar: 305818
Samtals gestir: 30946
Tölur uppfærðar: 1.11.2024 00:52:57
Færslur: 2009 Ágúst
31.08.2009 00:05
Ljósakvöld.
Ljósakvöldið hjá Petru í Steinasafninu var vel heppnað. Fjöldi manns mætti á staðinn og veðrið var eins og best er hægt að hugsa sé það.Myndir er að finna í nýju albúmi hér á síðunni.
Skrifað af Sigurjón
26.08.2009 23:59
Drangey.
Ég varð nú að smella einni á Drangey og kellingunni sem stendur enn þó kallinn sé fallinn en hann hrundi niður fyrir einhverjum árum.
Skrifað af Sigurjón
23.08.2009 12:48
Hólshyrna.
Þessi er tekin á Sigló fyrir stuttu og þetta er fjallið sem fólk rekur augun einna fyrst í þegar það heimsækir fjörðinn enda fallegt og mikið á að horfa.Ég held að það heiti, Hólshyrna(gleymdi að spyrja þegar ég var þarna) en leiðréttið mig ef ég fer rangt með.
Skrifað af Sigurjón
19.08.2009 23:11
Ágústkvöld á Siglufirði.
Þessa mynd tók ég fyrir nokkrum dögum þegar við hjónakornin gistum á tjaldsvæðinu sem er nokkra metra frá smábátahöfninni á Siglufirði.Við vorum þarna í 2 daga og fengum alveg glampandi sól allan þann tíma sem við stoppuðum þarna. Hittum aðeins á Arnar sem er á Múlaberginu en skipið kom til löndunar fyrri morguninn okkar þarna og fór út um kvöldið. Efri myndin sýnir skipið þar sem það er að leggja af stað á miðin.
Skrifað af Sigurjón
10.08.2009 13:35
Fiskidagar.
Það var gaman að labba um Dalvíkur bæ og kíkja á iðandi mannlífið og sérstaka aðdáun mína vakti þessi snotri ferðabíll sem stóð þarna á planinu og baðaði sig í athygli..
Skrifað af Sigurjón
- 1