Flettingar í dag: 407
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 67
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 133851
Samtals gestir: 7533
Tölur uppfærðar: 1.4.2023 12:37:26
Færslur: 2010 Janúar
29.01.2010 13:09
Hestamenn.

Þessi mynd er tekin úti á heyklifi árið 1983 þar sem nokkrir hestamenn komu saman áður en haldið skyldi af stað eitthvert út í náttúruna á þeysireið. Hér í forgrunni er Þorsteinn Kristjánsson eða Steini í Lyngholti eins og við Stöðfirðingar köllum hann. Um hina veit ég ekki,koma trúlega sunnan úr Breiðdal.
Skrifað af Sigurjón
19.01.2010 23:31
Kirkjur.

Ef þú lesandi góður ert í vafa um hvaða kirkja þetta er, skaltu kíkja á nýstofnað albúm sem tekur yfir margar kirkjur á landinu og er safn Kristínar,myndir sem hún hefur tekið á ferðum okkar um landið. Einnig er notast við myndir sem Jóhannes Sigurðsson faðir hennar smellti af á sínum ferðalögum. Njótið vel..
Skrifað af Sigurjón
10.01.2010 21:22
Vetrarganga.

Þegar gengið er eftir fjöruborðinu á þessum stað flögrar að manni sú hugsun að fátt geti skákað svona fallegu umhverfi. Hafið það sem allra best..
Skrifað af Sigurjón
- 1