Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 104
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183597
Samtals gestir: 19808
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 08:57:49

Færslur: 2011 Október

29.10.2011 00:58

Gísli Árni.


Þessi bátur var algeng sjón hér á staðnum hér á árum áður en þessi mynd er tekin í kringum 1967 eða sama árið og Heimir SU  lagðist hér að bryggju í fyrsta sinn. Þessi þótti nokkuð flottur á sínum tíma en hann var yfirbyggður að hálfu leiti á meðan íslenski síldveiðiflotinn var að mestu leiti bara með eitt dekk.Þetta er að mörgu leiti skemmtileg mynd,gamla beinamjölshúsið stendur þarna enn og enginn varnargarður er kominn utan við gömlu bryggjuna sem fór reglulega í kaf í miklum flóðum og sjógangi sem fylgdi með í kaupæti. Myndin er fengin að láni hjá Björgvin Val Guðmundssyni.

12.10.2011 14:28

Heimir SU.



Hér kemur mynd af Heimi SU(mið Heimi) sem er tekin stuttu áður en hann var seldur til Hnífsdals. Þarna er báturinn að leggja af stað til Reykjavíkur í slipp í einhverja yfirhalningu. Myndin er úr safni Snæhvammsmynda sem ég fékk hjá Herborgu frænku og  trúlega tekin af Dodda í Snæhvammi.. 
  • 1
clockhere