Flettingar í dag: 181
Gestir í dag: 121
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183632
Samtals gestir: 19825
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 11:05:23

Færslur: 2010 Febrúar

12.02.2010 13:34

12. Febrúar.



Þessi dagur hefur alltaf verið einn að hátíðisdögunum í fjölskyldunni enda afmælisdagur pabba sem hefði orðið 80 ára í dag hefði honum enst aldur til og litla krílið sem leit dagsins ljós á afmælisdaginn hans fyrir 40 árum og skírð var Solveig að kröfu pabba heldur upp á sinn merkisdag. Á þessum degi er minningin um pabba einna sterkust og fljóta upp á yfirborðið ótal góðar minningar sem aldrei dofna. Þessi mynd er tekin 1983 uppi í Fögruhlíð og sjást feðginin vera að búa sig í veiðitúr niður að vatninu í sól og blíðu eins og dagurinn er í dag hér í firðinum. 

07.02.2010 01:04

Bragi SU 210



Þetta er Bragi SU 210 og var keyptur til Breiðdalsvíkur árið 1961 af Braga h/f og Hraðfrystihúsi Breiðdælinga og mældist 90 brl. Smíðaður í Bandaríkjunum árið 1944 og jafnframt fyrsta fiskiskip sem Bandaríkjamenn byggja fyrir Íslendinga. Svanur Sigurðsson, eigandi Braga h/f var skipstjóri á þessum bát á meðan hann var gerður út frá Breiðdalsvík.Ég á nokkrar minningar tengdar þessu fleyi en pabbi var um tíma vélstjóri þarna um borð á meðan hann var að bíða eftir "Heimi" sem var í smíðum úti í Noregi og fór í nokkrar siglingar til Þýskalands eða Englands á þessu tímabili í misjöfnum vetrarveðrum. Man ég eftir í eitt skiptið höfðu þeir fengið á sig góða skvettu og lögðu að bryggju með laskaðan bátapall. Bát þennan þekkti maður á löngu færi því hann hallaði stöðugt tómur og skilst mér að bátar þeir er voru byggðir eftir þessari sömu teikningu hafi borið sömu einkenni. Mynd þessa fékk ég úr safni Þórs Jónssonar á Djúpavogi en Sigurður Þorleifsson tengdafaðir hans tók myndina í kringum 1962-64 og gaf honum. Það er auðséð á myndinni að þarna er aftur mastrið horfið en það brotnaði af í einu óveðrinu þegar Bragi var að koma inn til Breiðdalsvíkur úr veiðiferð.  Endalok skipsins urðu þau að 1971 var það dæmt ónýtt og því sökkt út af Austfjörðum.      Aðrar heimildir: Íslensk skip.

04.02.2010 13:54

Kyrrlátt við fjörðinn.



Ég hef einhvern tíma birt þessa mynd áður sem er tekin á 7. áratugnum en finnst tilvalið að slá henni upp aftur svona í gúrkutíðinni. Þetta umhverfi er dálítið breytt í dag og sjást tvær bensístöðvar af þremur,gamla Kaupfélagið sem er nú horfið og haugur af timri fyrir innan Samkomuhúsið enda alltaf verið að byggja á þessum árum og þegar þessi mynd er tekin er flutningaskip nýfarið frá bryggjunni enda Sambandið á fullum snúningi og með allar legur smurðar á þessum tíma. 
  • 1
clockhere