Antal sidvisningar idag: 286
Antal unika besökare idag: 47
Antal sidvisningar igår: 143
Antal unika besökare igår: 10
Totalt antal sidvisningar: 361202
Antal unika besökare totalt: 34454
Uppdaterat antal: 15.1.2025 12:32:49
Blogghistorik: 2008 N/A Blog|Month_3
19.03.2008 14:49
Þessi...
er tekin fyrir nokkrum dögum er Arnar var á röltinu niður við höfn í vorblíðunni.
N/A Blog|WrittenBy Sigurjón
13.03.2008 13:30
Sumarið 96.
Sumarið 1996 var Kambaröstinnni haldið út til karfaveiða á" Hryggnum" svokallaða suðvestur af Reykjanesi og var lagt upp á Grundarfirði þar aflanum var landað í gáma. Eitthvað fiskaðist illa einn túrinn og var veiðarfærinu kennt um sem var nú hálfgerður garmur og var gripið til þess ráðs að síma í land og panta annað í hvelli. Hringur SH var að leggja af stað frá Grundarfirði á sömu slóðir og kom með nýtt stykki flottroll,slakaði endanum í sjóinn sem við náðum inn á spil og átti síðan að spóla inn með hraði. Þetta troll var aldrei notað því í miðjum flutningum fékk Hringur draslið í skrúfuna og þannig ráku skipin samhliða góðan part úr degi þar til náðist að losa úr skrúfunni og nýja veiðarfærinu pakkað saman til frekari geymslu um borð í rauða skipinu.Myndin er tekin þegar verið er að losa úr skrúfunni á Hring.
05.03.2008 12:39
Gamla myndin.
Þessi mynd er fengin úr safni Rafns Svanssonar, tekin 1973 er Hvalbakur kom til hafnar í fyrsta sinn. Pabbi og Svanur Sigurðsson eru kapparnir sem sjást þarna. Úti á firði er verið að tolla skipið.
N/A Blog|WrittenBy Sigurjón
- 1