Flettingar í dag: 576
Gestir í dag: 103
Flettingar í gær: 643
Gestir í gær: 209
Samtals flettingar: 185132
Samtals gestir: 20296
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 17:14:03

Færslur: 2009 Maí

31.05.2009 22:12

Útskrift.



Laugardaginn 23 Maí var Arnar sonur okkar útskrifaður með pomp og pragt úr vélskólanum eða vélfræðideild Tækniskólans eins og það heitir í dag. Athöfnin fór fram í Háskólabíói og voru um 370 nemendur útskrifaðir. Þetta rann bara nokkuð ljúflega áfram enda höfðu forstöðumenn skólans vit á því að vera ekki að þreyta sjálfa sig og aðra með óþarfa ræðustögli og var þetta því hin besta stund Eftir athöfnina var gengið út í sólina og myndað í gríð og erg.
Fleiri myndir má skoða í myndaalbúmi hér á síðunni.

26.05.2009 12:45

26.Mai

Það er væntanlega kominn tími á að ný myndfærsla líti hér dagsins ljós en þessi er tekin við Mývatn seint í gærkvöldi í afar fallegu veðri, við hjónin nýkomin úr votviðrinu sem herjaði á Húnvetninga.

13.05.2009 12:17

13.Mai.

07.05.2009 14:02

Mývatn.



Til að minna okkur á að sumarið sé komið og setja okkur í ferðagírinn set ég inn mynd sem var tekin við Mývatn í fyrrasumar í frábæru veðri.Náttúran skartaði sínu fegursta en sólin faldi sig annað slagið sem var hið besta mál.

01.05.2009 18:07

1.Maí.

  • 1
clockhere