Flettingar í dag: 1391
Gestir í dag: 233
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190569
Samtals gestir: 21721
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 15:39:48
16.11.2006 22:30
Veðurfréttir
Þetta er nú meira dómadags veðrið sem er nú búið að herja á okkur
landsmenn dag eftir dag og spáin er sú sama hvernig sem ég ligg á bæn
og bið um að hann fari nú að rigna.Það er ekki lengur eins gaman þegar
norðanáttin gnauðar við gluggann og var hér á árum áður.Þá sló út öllu
rafmagni,hlutur sem maður kunni vel að meta því datt út sjónvarpið og
stóð eins og illa gerður hlutur úti í horni og heimilisbragurinn
gjörbreyttist.Bækur voru dregnar upp, sumir reyndu að hlusta á snarkið
í gömlu gufunni og gátu verið furðu þolinmóðir við þá iðju.
Skólanum var aflýst, þó ekki væri nema í einn dag var það mikið fagnaðarefni fyrir ungar sálir sem öskruð af gleði og stukku út í snjóinn með tilheyrandi látum eins og þegar kúnum er hleypt út á vorin í fyrsta sinn.
Svona er lífið með sína kosti og galla....

Skrifað af Sigurjón