Flettingar í dag: 1505
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190683
Samtals gestir: 21722
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:47:46

27.02.2007 23:13

Trúarhiti




Það er ekki að spyrja að trúrækni okkar Íslendinga hvar sem er og hvenær sem er.Það kom best í ljós í Kanadaferð okkar álversmanna sem lauk fyrir nokkrum dögum.Strax í byrjun fararinnar stakk sér niður í hópinn illskeytt flensa sem lék margan manninn nokkuð grátt,það grátt að nokkrir þeir sem sluppu við þennan vágest fóru í nærliggjandi kirkju og bænuðu nótt sem nýtan dag.Var legið á bæn dögum saman og stoppuðu þeir ekki upp til að neyta matar og drykkjar.Fólk í næstu húsum sá að við svo mátti ekki búa og færði það þeim mat reglulega og það þarf varla að taka það fram að allir komust til heilsu á ný vegna framtaks þessara ungu manna.

clockhere