Flettingar í dag: 1301
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190479
Samtals gestir: 21719
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 14:39:30

30.10.2007 22:48

Dekkjablús.








Þá er tími nagladekkjanna runnin upp og dekkjakallarnir standa kófsveittir inni á dekkjaverksvæðum og setja fimlega vetrardekkin á felgurnar, meðan viðskiptavinir bíða í nettum röðum fyrir utan.
Ég setti undir mig hausinn í morgun,braust niður í geymslu og fann vetrardekkin og smellti undir,engin biðröð nema kötturinn"Megas" sat rétt hjá og fylgdist með af athygli.
Sjálfsagt hefur honum verið hlátur í huga þó alvara væri í svip hans enda kunna kettir sig ávalt.Það passaði til,byrjaði að snjóa þegar ég var að herða síðasta boltann,lagði síðan af stað upp í Egilsstaði í ágætis færð en í bakaleiðinni var komið leiðinda slabb og ekki orð um það meir...
clockhere