Flettingar í dag: 1683
Gestir í dag: 239
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190861
Samtals gestir: 21727
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 18:08:36

13.03.2008 13:30

Sumarið 96.



Sumarið 1996 var Kambaröstinnni haldið út til karfaveiða á" Hryggnum" svokallaða suðvestur af Reykjanesi og var lagt upp á Grundarfirði þar aflanum var landað í gáma. Eitthvað fiskaðist illa einn túrinn og var veiðarfærinu kennt um sem var nú hálfgerður garmur og var gripið til þess ráðs að síma í land og panta annað í hvelli. Hringur SH var að leggja af stað frá Grundarfirði á sömu slóðir og kom með nýtt stykki flottroll,slakaði endanum í sjóinn sem við náðum inn á spil og átti síðan að spóla inn með hraði. Þetta troll var aldrei notað því í miðjum flutningum fékk Hringur draslið í skrúfuna og þannig ráku skipin samhliða góðan part úr degi þar til náðist að losa úr skrúfunni og nýja veiðarfærinu pakkað saman til frekari geymslu um borð í rauða skipinu.Myndin er tekin þegar verið er að losa úr skrúfunni á Hring.
clockhere