Flettingar í dag: 1505
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190683
Samtals gestir: 21722
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:47:46

12.02.2010 13:34

12. Febrúar.



Þessi dagur hefur alltaf verið einn að hátíðisdögunum í fjölskyldunni enda afmælisdagur pabba sem hefði orðið 80 ára í dag hefði honum enst aldur til og litla krílið sem leit dagsins ljós á afmælisdaginn hans fyrir 40 árum og skírð var Solveig að kröfu pabba heldur upp á sinn merkisdag. Á þessum degi er minningin um pabba einna sterkust og fljóta upp á yfirborðið ótal góðar minningar sem aldrei dofna. Þessi mynd er tekin 1983 uppi í Fögruhlíð og sjást feðginin vera að búa sig í veiðitúr niður að vatninu í sól og blíðu eins og dagurinn er í dag hér í firðinum. 
clockhere