Flettingar í dag: 1505
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190683
Samtals gestir: 21722
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:47:46

05.06.2011 17:47

Sjómannadagurinn.



Þegar ég horfi á þessa mynd,hverf ég mörg ár aftur í tímann og minnist hátíðarhaldanna sem fylgdu Þessum sjómannadegi. Allir bæjarbúar drifu sig niður á bryggju og byrjuðu daginn á að demba sér í skemmtisiglingu með fiskiskipum staðarins sem voru,Kambaröst og Haddur en Heimir var í smíðum úti í Noregi. Ég var smá gutti þegar þessi mynd var tekin og stend uppi í bassaskýlinu ásamt félögum mínum og þótti okkur þetta mikil upplifun.Eftir að lagst var að bryggju hófust hátíðarhöldin. Kalli Kristjáns skipsstjóri skaut upp neyðarblysi um borð í Kambaröstinni og í framhaldi af því var línu skotið yfir á litlu bryggju og Vífill Karlsson dreginn yfir á bryggjuna í björgunarstól. Svona leið dagurinn og svona voru þeir margir eins og allir muna. Í framhaldi af þessum vangaveltum óska ég öllum sjómönnum til hamingju með daginn...........
clockhere