Flettingar í dag: 1505
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 990
Gestir í gær: 138
Samtals flettingar: 190683
Samtals gestir: 21722
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 16:47:46

28.07.2011 12:41

Snæhvammur.


Þessi mynd er tekin á  ættarmóti sem átti sér stað um síðustu helgi. Ekki komu eins margir og ætlað var en mótið tókst vel  í alla staði og sólin skein yfir allt saman. Þó hefðum við getað verið fleiri því ýmsar rollur þóttust eiga brýnt erindi inn á svæðið en var ávalt vísað frá. Töluvert af túristum renndi í hlaðið því þeir töldu að þetta væri opinbert tjaldstæði er þeir sáu kamarinn góða sem stóð á áberandi stað til hægðarauka fyrir ættarmótsgesti en þeim var líka vinsamlega vísað frá og bent á frábæra aðstöðu bæði á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík.......
clockhere