Flettingar í dag: 248
Gestir í dag: 170
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183699
Samtals gestir: 19874
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 15:38:03

06.01.2009 14:18

Á nýju ári.



Þessi er tekin suður í Kambaskriðum er við feðgar vorum á leið til Breiðdalsvíkur til að kaupa okkur skotfæri svo við gætum látið ljós okkar skína á síðasta kvöldi ársins. Gamlárskvöldið tókst vel, brennan ásamt flugeldasýningu var ágætisstund enda veðrið með besta móti og stemmingin jafngóð og veðrið. Ég get sagt allt það sama um hjónaballið sem tókst í alla staði mjög vel þó ekki hafi margir skilað sér þá var dansgólfið alltaf fullt og allir ákveðnir í að skemmta sér.Sérlega var gaman að hitta þá Ævar, Rúnar og Guðna sem mættu með sínum konum og vil ég þakka þeim fyrir að koma og taka þátt í þessu með okkur. Vonum bara að hjónaböllin haldi velli...

clockhere