Today's page views: 635
Today's unique visitors: 97
Yesterday's page views: 143
Yesterday's unique visitors: 10
Total page views: 361551
Total unique visitors: 34504
Updated numbers: 15.1.2025 13:43:14
Blog records: 2008 N/A Blog|Month_10
28.10.2008 22:08
Fokið í flest skjól.
Það er að verða hálf snubbótt klæðningin á Sunnuhvoli en í veðurhamnum síðastliðna nótt fór dágóð spilda af norðurveggnum eins og meðfylgjandi mynd skýrir frá. Ekki var ástandið skárra í nágrannabyggðinni sem og sést á myndinni efst uppi. Flaggstöngin í Brynju hefur lagt sig upp að húsinu og tekið hluta af veggnum með sér.
Written by Sigurjón
24.10.2008 00:20
Fleiri höfðingjar.
Hér kemur mynd sem tekin er suður í Breiðdal og sýnir að ég held stjórnarmeðlimi Kaupfélagsins á góðri stund,allir sem einn í sínu besta pússi. Ég þekki sum andlitin og væri gaman fá innlegg frá ykkur í púsluna.
Written by Sigurjón
15.10.2008 18:19
Þekkiði þessa höfðingja?
Fékk þessa senda fyrir stuttu og getiði nú.
Written by Sigurjón
09.10.2008 12:57
Dögun.
Ég skelli þessari mynd inn aftur, bara til að minna á að þrátt fyrir allt kemur sólin alltaf upp aftur.
Written by Sigurjón
04.10.2008 01:30
Best
að skella á einni hrímkaldri vetrarmynd svona í tilefni þess að bráðum kemur ekki verri tíð með snjófönn í haga..
Written by Sigurjón
- 1