Today's page views: 635
Today's unique visitors: 97
Yesterday's page views: 143
Yesterday's unique visitors: 10
Total page views: 361551
Total unique visitors: 34504
Updated numbers: 15.1.2025 13:43:14
Blog records: 2010 N/A Blog|Month_3
30.03.2010 13:38
Síldarsöltun
Þessa mynd tók Kjartan Herbjörnsson seint á níunda áratug seinustu aldar og sýnir síldarsöltun í fullum gangi í salthúsinu á Stöðvarfirði. Þarna er hratt unnið því varla hefst undan,bátur á leið í land fleyifullur af hafsins silfri sem er óðara breytt í gull þegar heim er komið. Fleiri myndir í albúmi.
Written by Sigurjón
20.03.2010 16:26
Fjaran.
Þessi mynd sem er úr albúmi mömmu minnar er orðin nokkuð gömul, en þarna er gamla kaupfélagið í fullri drift og Björn á Hóli hefur greinilega ýtt sínu fleyi úr vör og róið á fengsæl fiskimið því Ópelinn hans gamli stendur þarna og bíður eiganda síns.Hef ekki fleiri orð um þessa mynd sem talar sínu máli sjálf...
Written by Sigurjón
18.03.2010 01:03
1988.
Þessi mynd er tekin 1988 held ég og sýnir Bankann svokallaða að hruni kominn eftir að það kviknaði í út frá ofni sem var þar inni í gangi og þar með var sögu þessa merka húss lokið. Brekkan er þarna á sínum stað en undir öðru nafni en það eru mörg skiltin búin að hanga þarna á veggnum með jafnmörgum nöfnum.Fjárhúsin í Bakkagerði eru þarna á hraðri niðurleið og Sigurjón Geirsson er greinilega byrjaður á að stinga upp kartöflugarðinn. Það er oft gaman að líta til baka
Written by Sigurjón
12.03.2010 12:40
Smugan 93.
Þarna gefur að líta mynd sem ég tók 15.11.93 er við vorum nýkomnir á Kambaröstinni í Smuguna en fréttir höfðu borist um mikla veiði þarna við ísröndina. Það eina sem við höfðum út úr þessum túr voru 15 tonn í lest og upplifunin við að sjá þessa ísbirni sem sjást þarna á myndinni og voru sjálfsagt í svipuðum erindagjörðum og við.
Written by Sigurjón
02.03.2010 13:07
Fyrir þá sem eru hættir í bransanum til að ylja sér við.
- 1