Flettingar í dag: 77
Gestir í dag: 63
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183528
Samtals gestir: 19767
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 06:44:38

04.08.2008 01:36

Einsi Bongó.



Þetta kvikindi hefst við í garðinum mínum þessa dagana og veit ég minnst um hvaðan það kemur en Arnar er búinn að gefa þessum nýja fjölskyldumeðlim nafnið,Einsi Bongó.

31.07.2008 12:19

Sumarkvöld



Eitt þessara fallegu sumarkvölda við fjörðinn. Eins og myndin sýnir er sólin að reyna að brjótast inn á myndina.

24.07.2008 21:03

Andlitslyfting.



Ég er bara að sýna hvað ég afrekaði með hvíta penslinum framan á viðbyggingunni í dag. Þetta er að vísu bara fyrsta umferð,já ég veit að það er smá blettur ómálaður á þakinu en góðir hlutir gerast hægt, svo ég sletti nú einum.....

20.07.2008 14:10

Chichen Itza.



Hér að ofan er Kukulcan Pýramídinn í hinni fornu Maya Indíánaborg, Chichen Itza, á Yucatan skaganum í Mexíkó,elstu byggingar í borginni eru um 1500 ára gamlar.

16.07.2008 15:14

Frá Hofsósi.



Við hjónin komum við á Hofsósi um daginn og skoðuðum Vesturfarasetrið.Hvet ég alla þá sem ekki hafa skoðað, að leggja lykkju á leið sína.

09.07.2008 12:50

Vinur



Vinurinn var sjósettur í gærdag með hefðbundnum hætti nema að þegar komið var niður að smábátahöfn,læsti vagninn sér og neitaði að fara lengra.Við fjórmenningarnir sem stóðum að sjósetningunni bárum síðan skipið síðasta spölinn og á flot fór hann.
Þessi mynd er reyndar frá haustinu 2004.

08.07.2008 19:10

Mexico




06.07.2008 17:42

Mexico



 Þetta er mynd sem Arnar tók þegar hann lenti til Mexico fyrr í sumar. Þetta er skemmtileg mynd og segir allt sem segja þarf. Fleiri myndir koma í kjölfarið þegar vel viðrar. Hafið það sem allra best.

30.06.2008 13:13

Áfram Súlan.



Það var baráttuhugur í leikmönnum staðarins á afmælismóti Súlunnar er þeir reyndu að rétta hlut sinn í harðri baráttu gegn Breiðdælingum og mitt stóra íþróttahjarta sló nokkur aukaslög meðan á þessu stóð. Fleiri myndir í albúmi.

24.06.2008 12:52

ruppik


20.06.2008 12:24

Gamla myndin.



Þessi er tekin utan úr hólma í átt að gamla Snæhvammi sem stóð uppi á svokölluðu Gamla túni. Ég held að Þórður móðurbróðir eigi þessa enda var hann helsti myndasmiðurinn á þessum árum og liggja eftir hann fjölmargar myndir sem eru hreinustu gersemar.

16.06.2008 12:17

Hafnarnes.



Ég heyrði fyrir stuttu í útvarpinu að Franski spítalinn væri kominn á skrá hjá húsafriðunarnefnd og fær hann þá sjálfsagt sína yfirhalningu þegar þar að kemur. Mér datt í hug hvort þessi hús hefðu kannski fylgt með en ég heyrði ekki alla fréttina.

10.06.2008 12:25

Jón Kjartansson SU



Þessi mynd er tekin fyrir háfum mánuði  af Jóni Kjartanssyni sem bíður þess að skrölta á miðin í fyllingu tímans til að færa björg í bú.Þetta er tilkomumikið skip með mikla og farsæla sögu á bak við sig. Hét áður Hólmaborg SU hjá sama fyrirtæki og þar áður Eldborg HF og var gerð út frá Hafnarfirði.

08.06.2008 17:45

Gamla myndin



Þessi mynd er tekin úti á Bæjarstöðum í heyskapartíðinni þegar fullorðna fólkið stóð við slátt og rakstur en börnin léku fyrirsætur, enda eru þær þó nokkrar myndirnar sem til eru frá þessu sumri og verða kannski birtar seinna þegar vel viðrar.
clockhere