Flettingar í dag: 315
Gestir í dag: 207
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183766
Samtals gestir: 19911
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 19:04:33

01.05.2007 14:25

1.Maí



Til hamingju með daginn í dag.

25.04.2007 22:48

Einn gamall og góður



Þegar ég var að grúska í mynda safninu mínu fann ég mynd af Vartaranum mínum, 79 model,rauður að lit eins og austrið sem hann kemur frá.Þetta var nokkuð skemmtilegur bíll utan tvígengisvélin sem prumpaði og gaf frá sér væna reykgusu ef manni varð á að stíga of harkalega á bensíngjöfina.þetta tæki hafði sér það til ágætis að það var hægt að skjóta upp rakettu úr aftursætinu út um gluggann á meðan fákurinn brunaði veg gleði og hamingju.Það var öllu leiðinlegra að þrífa sótið af innviðum bílsins daginn eftir.Fyrir aftan stendur Hondan sem Mamma átti,skemmtilegur bíll.

22.04.2007 22:55

Frænkur sunnan við fjallið


 Það eru tveir tenglar sem ég færði inn á rangan hátt, en það eru ljósmyndasíður Herborgar og Kötu en nú er þetta komið í lag.
Ég hvet alla til að kíkja á þessar myndir sem eru flest allar hreint listaverk.

19.04.2007 17:20

Gleðilegt sumar og þökk fyrir veturinn.



Þessi sumarmynd er að vísu tekin í Noregi og er úr myndasafni Sólrúnar systur minnar,
 vona ég að hún fyrirgefi mér stuldinn.

16.04.2007 23:48

Landatangi



Ég tók mig til í dag og rölti út á Landabrúnir í góðu en frekar svölu veðri og er þetta sýnishorn af nokkrum myndum sem ég lét flæða inn í Kódakinn en þær eru að finna í albúminu: Úr ýmsum áttum.

12.04.2007 21:31

Veðurfréttir


 Við hjónin vorum að renna í hlaðið eftir frekar stutta veru í höfuðborginni.Fengum allavega veður sem byrjaði með svæsnu sólskyni og var ég rétt búinn að setja upp sólgleraugun og kominn í sólskinsskap þegar dimmdi yfir og haglið drundi á bílnum. Síðan kom rigning í kjölfarið, sól krapaslydda og síðan væn rigning í lokin.

06.04.2007 13:55

Föstudagurinn langi.

 Í dag ætla ég að gera það sem mér finnst best að gera. Það er, að gera alls ekki neitt enda má ekki gera neitt nema sitja heima og senda fallegar hugsanir út í heiminn,til alls og allra. Gleðilega Páska öll sömul.

01.04.2007 22:47

Málsháttur dagsins.


 Hjónaband er háskóli lífsins. Málsháttur þessi flaut út úr páskaegginu sem ég stalst til að opna í dag.

28.03.2007 21:02

Kvöldtónar


 Það leynir sér ekki að sumarið er að ganga í garð með sunnan þey og kröftugum fuglasöng snemma á morgnana.Lóan er komin og gæsakvak heyrir maður líka á stundum sem gleður mig óstjórnlega og fæ ég alltaf vatn í munninn þegar ég heyri þeirra fagra söng og sé fyrir mér borð hlaðið villibráð ásamt fleira góðgæti.
Lóan er sögð góð líka en ég vil frekar heyra sönginn hennar.

26.03.2007 22:46

Af hverju...........


Brotnar spaghetti prjónninn alltaf í þrjá hluta þegar hann bognar?



23.03.2007 22:27

Veðurfréttir.


Það var ljóta veðrið í nótt.Ég var nú bara hræddur.
Rútugreyið titraði og skalf, bílstjórinn var mæddur.

19.03.2007 00:00

Stöðfirsk fiskiskip



Hún Þóra Björk kom færandi hendi og stakk að mér myndum af Gunnari SU sem pabbi hennar átti  og Kristínu sem pabbi átti. Stakk ég þeim í fiskiskipaalbúmið ásamt fleiri myndum ef þið viljið kíkja.Mig vantar myndir af mestöllum trilluflotanum og myndi ég þiggja það með þökkum ef einhver vill senda mér.

17.03.2007 00:26

Balinn


 Ég heyrði fyrir skömmu að í ráði væri að útbúa sparkvöll á balanum okkar góða.Það það hefur alltaf verið mikill höfuðverkur hvað gera ætti við þennan blett.Sumir vildu byggja þarna ámeðan aðrir vildu gróðursetja þarna tré og enn aðrir útbúa íþróttaparadís.Mín tillaga er sú að hver fjölskylda eða jafnvel einstaklingur fái úthlutað vissum fermetrafjölda fyrir sig og framkvæmi þar eitthvað sem hún eða hann hafi áhuga á.
Það kæmi vel út og málið er dautt...

14.03.2007 22:59

Hornbjarg



 Mynd þessi er tekin við Hornbjarg á síðasta sumri af Kára Kristinssyni.

08.03.2007 23:30

Áfram stelpur


 

 Til hamingju með daginn og gangi ykkur allt í haginn.

 
clockhere