Flettingar í dag: 222
Gestir í dag: 154
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183673
Samtals gestir: 19858
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 13:26:49

18.04.2009 13:09

Gamla myndin.



Þessi mynd er tekin einhvern tíma á síðari hluta 8. áratus á seinustu öld er Þorgrímur í Sætúni fór með hóp af túristum í sýnisferð út í Papey.Í þessum hóp fyrir utan Þorgrím voru,Snæþór Kristinsson,Sigurveig og Þorleifur á Borgargarði Marta Vilbergsdóttir,Ingólfur Kristjánsson,einhver börn sem ég man ekki hver voru og ljósmyndarinn sem tók þessa mynd .Fleiri myndir voru teknar og verða þær settar inn síðar í myndaalbúm við tækifæri.Góðar stundir.

06.04.2009 21:54

Grýlukertabúðin



býður upp á fjölbreytt val á grýlukertum í ár enda hver að verða síðastur að ná sér í kerti þar sem vetur er á undanhaldi og vorkoman í nánd.Það er alla vega komið vor á þessari síðu og munu næstu myndir einkennast af fljúgandi gæsakjöti og fleiru sem tilheyrir vorkomunni.Góðar stundir.

04.04.2009 17:51

Ótitlað

Ég nenni ekki að skrifa neitt í dag sökum þess hvað veðrið er gott.Ég þakka samt fyrir kaffið í Rauðakross húsinu sem boðið var upp á í tilefni þess að verið var að opna verslun í húsnæðinu...

28.03.2009 11:17

Ótitlað



Það er aldeilis fínn dagur í dag og er ég að hugsa um að nota hann vel og rasskellast eitthvað út í buskann.Sem sé,verðað að heiman í dag,hafið það gott..

17.03.2009 11:53

Orð dagsins.



Hefurðu fundið, hvað himneskt lífið er,
gleðina í elskunni, guð í sjálfum þér?

Hefurðu séð það sem heimurinn á,
eilífa fegurð, sem aldrei deyja má.
     
          Ólína Andrésdóttir.

12.03.2009 12:33

Húsið á hæðinni.



Þessi var tekin upp á grín um hánótt í myljandi snjókomu og bjóst ég ekki við miklum árangri en eitthvað varð úr þessu og fyrst svo varð þá kasta ég henni hér inn.

08.03.2009 15:41

Góða Tungl.



Þegar maður er orðinn illa leiður á fannhvítri jörð þá horfir maður upp í loftið og sér þar sinn besta vin sem fær mann til gleyma sér örstutta stund.Þetta áhorf hefur ólík áhrif á manneskjuna,sumir standa rólegir aðrir liggja,sumir standa og góla á meðan aðrir hlæja að þessu öllusaman sem er hið besta mál. Tekið skal fram að ég stóð uppi í Tjarnardal og smellti þessari af eftir að hafa staðið utangátta í smá tíma. Hafið það gott.

05.03.2009 18:08

Orð dagsins.

Hver dagur er sérstök stund.

12.02.2009 14:15

12. Febrúar.

Í dag hefði Friðrik faðir minn orðið 79 ára gamall ef hann hefði lifað. Þessi mynd er tekin vorið 1983 er við skruppum ásamt Stínu til að smíða og mála innanhúss en húsið var reist árið áður.
Fagrahlíð átti hug hans allan og vörðu þau hjónin mest öllum frítíma sínum í þessum sælureit við ýmis áhugamál sín. Ég læt þetta nægja en ef einhver kann skemmtilega sögu af honum má hann endilega skella henni hér fyrir neðan. Það væri vel þegið.emoticon

 

09.02.2009 12:11

Skrúður og Narfi.



Við erum stödd úti á Kambanesi og horfum til hafs þar sem Narfinn þokast hægt áfram við línudrátt en Skrúðurinn situr kyrr og fylgist með enda engin ástæða fyrir hann að fara að brölta eitt né neitt.
clockhere