Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 462
Gestir í gær: 280
Samtals flettingar: 184009
Samtals gestir: 20025
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 02:48:08

06.06.2008 12:18

Horft til Snæhvamms.



Það er tilvalið að hafa með sér kodakinn þegar farið er með bílinn í dekkjaviðgerð og smella af einni og einni mynd meðan beðið er, enda Breiðdalurinn með fallegri stöðum sem stoppað er á....

01.06.2008 00:23

Sjómannadagurinn.



Kæru sjómenn! Til hamingju með daginn!

23.05.2008 12:44

Vorkvöld í Reykjavík.



Lenti út á Álftanes fyrir stuttu og við mér blasti þessi fallega sjón sem hefur orðið sumum skáldum að yrkisefni.Þegar þessi mynd var tekin var vetrargarri fyrir austan og norðan,hálka á vegum og allt sem því fylgir.

18.05.2008 13:10

Rafvirkinn,Vélstjórinn,Tónlistarmaðurinn.



Þessi mynd er tekin um síðustu jól og sýnir þá systkinasynina,Kára Snæ, Arnar Snæ og Hilmar Örn í jólaskapi.Ég rakst á þessa mynd núna rétt áðan og fannst tilvalið að skella þeim frændum á skjáinn enda bráðhuggulegir menn.

15.05.2008 22:30

Minning



Þetta er elsku pabbi minn Jóhannes Sölvi sem lést 30.apríl.blessuð sé minning hans

14.05.2008 12:20

Spakmælið mitt.


Njóttu augnabliksins,því það kemur aldrei aftur.

09.05.2008 17:35

Getraunin.



Það var einhver að biðja um getraun um daginn og hér er hún komin.Hvað heitir staðurinn og í hvaða skáldverki kemur þessi staður meira og minna fyrir?

29.04.2008 21:32

Við höfnina



Ljósm:Arnar Snær.

24.04.2008 13:12

Gleðilegt sumar.



Gleðilegt sumar öll sömul.

20.04.2008 23:16

Allt í kafi.



Svona var umhorfs í kringum Fögruhlíð þegar við hjónin kíktum þar við í dag,allt í kafi og ansi vetrarlegt en veðrið með eindæmum gott og fallegt.

15.04.2008 21:10

15. Apríl.



Það var fallegt að horfa út á Breiðdalsflóann í dag enda veðrið í toppformi og verður væntanlega næstu daga. Fleiri myndir komnar inn í albúmið: Vetrarmyndir.

13.04.2008 14:52

Balaborg 20 ára.



Í gær voru liðin 20 ár frá því að leiksólinn Balaborg hóf  starfsemi sína og var í tilefni af því  opið hús þar gestir og gangandi komu og gæddu sér á ýmsu góðgæti sem foreldrafélagið stóð að með miklum sóma. Þeir félagar ,Karíus og Baktus voru sérstakir heiðursgestir og var þeim vel tekið.

12.04.2008 19:09

Inn-bærinn





Þessi mynd er tekin um páskana og sýnir innbæinn í allri sinni dýrð og ekki skemmir Hellufjallið sem trónir þarna og fer aldrei neitt, sem betur fer. LJÓSM: Arnar Snær.
clockhere