Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 112
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 75
Samtals flettingar: 183610
Samtals gestir: 19816
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 09:52:03

19.09.2012 15:14

Gamla myndin.


Hér kemur mynd af Danska Heimi og Guðfinni KE á siglingu í hafsins ólgusjó. Meira veit ég ekki um þessa mynd. Ljósm.Heimir Stígsson.

22.07.2012 00:39

Færeyjar.


Þessi mynd er tekin í Klaksvík fyrir nokkru og er í einu af mörgum albúmum sem búið er að setja hér inn á síðuna. Gerið þið svo vel.emoticon

31.05.2012 13:21

Síldin kom með sumarið til Stöðvarfjarðar.


Var fyrirsögnin á frétt Moggans sem sagði frá þessari fyrstu löndun sumarsins 1968. Heimir var með fyrstu skipum sem drifu sig á miðin norður við Bjarnarey og fékk þar fyrstur síld sem var um 400 tonn og sigldi með hana heim til Stöðvarfjarðar. Hér sést hann vera að leggja að bryggju eftir tæpa fjögura sólarhringa siglingu. Síldin var talin söltunarhæf. 

09.05.2012 14:31

Heimir SU.


Hér gefur að líta skemmtilega mynd sem tekin er um borð í Heimi SU 100 er þeir sigldu með saltfisk til Noregs á sjöunda áratug síðustu aldar. Þarna eru þeir félagar Jóhann Páli og Kjartan Vilbergsson á dekkinu. Einhverjir eru þarna uppi á hvalbak sem ég veit ekki hverjir eru.

09.03.2012 20:55

Björgvin EA.


Þessa mynd tók Arnar Snær af Björgvin EA frá Dallas á toginu í Reykjafjarðarál í gærdag. Mér skilst að þetta fallega skip sé á leið úr landi og verði gert út af Spánverjum í framtíðinni. 

29.02.2012 14:05

Siglt með ströndum.


Þessa mynd tók Kristmundur Þorleifsson um borð í Hoffellinu fyrir stuttu síðan er þeir voru að koma með enn einn loðnufarminn til Fáskrúðsfjarðar og gefur hér að líta Stokksnes og Eystrahorn. Þetta er ein af mörgum frábæru myndum sem hann á í safni sínu sem er orðið all mikið.

18.02.2012 14:38

Svona var það 67


Ég er nýbyrjaður að skanna inn myndir úr safni foreldra minna sem er æði mikið og margir gullmolar leynast þar eins og þessi mynd sem er tekin í kringum 1967 og sýnir hvernig útsýnið var frá mínum bæjardyrum  á þessum tíma.
clockhere