Flettingar í dag: 298
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 275
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 325779
Samtals gestir: 32139
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:29:52
03.12.2006 02:19
Í friði og ró
Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref á sjónum saknaði ég þess alltaf
að geta ekki verið meira heima þegar jólin voru í nánd.Það er svo margt
að gerast sem sjómennirnir missa hreinlega af nema þeir séu svo heppnir
að hafa nælt sér í smá kvefpest svo þeir hafi einhverja gilda afsökun
til að kúra heima í faðmi fjölskyldunnar.
Dorma uppi í rúmi eða sófa og hlaða inn á sig jólunum,vera mættur fram í eldhús í hvert skipti sem kökurnar renna sjóðheitar út úr ofninum og raða í sig þangað til átvaglið er rekið með harðri hendi fram aftur, sagt að
gera eitthvað gagn við jólaundirbúninginn fyrst heilsan sé orðin svona góð.
Oft hefur skipið verið að koma inn á Þorláksmessu og þá er margt eftir sem húsmóðirin hefur ekki komist yfir að gera einsog að koma upp útiseríum,handera skötuna ofl. Síðan koma jólin í friði og ró og enginn á sjó nema Hafliði og co en það er önnur saga sem verður sögð síðar.

Skrifað af Sigurjón