Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 187
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 179600
Samtals gestir: 18303
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 02:07:34

21.10.2006 12:18

Hrekkjablogg

Hér í bænum þar sem við hjónin höfum gist undan farið,stendur yfir hrekkjavaka sem heimiliskötturinn stendur fyrir og situr um að hrella saklausa næturgestina með allskonar hrekkjum og brögðum.Hann hefur einstakt lag á að fikta svo í heimilistölvunni að enginn veit hver er að skrifa hverjum póst eða hver bloggará hvaða bloggsíðu.Þannig var það einn morguninn er húsfreyjan með kaffibollann sinn settist við tölvuna og setti saman þessi fínu skrif og mynd af kettinum,að það hafnaði á síðunni minni sem kötturinn var búinn að opna og þegar hún í öngum sínum ætlaði að leiðrétta þessi leiðu mistök hafði sá hinn sami náð að loka síðunni aftur og lá úti í horni og malaði.

16.10.2006 23:31

Vetur

Nú er úti norðan vindur, ég á að vísu engar kindur
en Vinur er kominn í naust  bak við hús.

15.10.2006 01:46

Símahleranir

Þegar allt logar í umræðum vegna sagna um að sími Jóns Baldvins hafi verið hleraður þá fer maður að hugsa til baka þegar ég var hafður í sveit fyrir sunnan fjallið til að læra þar góða siði og búa mig undir það að verða heiðarlegur þjóðfélagsþegn.Sjálfsagt hef ég haft gott af verunni og lært eitthvað nytsamlegt en eitt var það sem freistaði og fáir gátu látið í friði,var náttúrulega síminn sem færði manni allar nýjustu fréttirnar.
 Trúlega hafa þessir kónar sem hleruðu símann hjá honum Jóni verið hafðir í sveit sumar eftir sumar og því verið í góðri þjálfun og maður bara spyr sjálfan sig hvort að sveitaveran sé öllum holl.

12.10.2006 22:59

Fimmtudagur


Þessi hjón heimsóttu mig í rigningunni í dag og sögðust vera langt að komin og báðu um húsaskjól,væru þau ýmsu vön veðurfarslega séð en aldrei upplifað á sinni löngu ævi syndaflóð sem þetta.

06.10.2006 23:05

Gamla myndin

                                                                                           
Þessa mynd rakst ég á þar sem ég var gestkomandi í Breiðholtinu.Þetta var nokkuð stór mynd(A3) og hafði verið skilin eftir af fyrri ábúendum þar.Ég setti hana á eldhúsborðið og smellti af einni mynd.
 Mér datt í hug að birta hana hér ef einhver skyldi hafa gaman af að berja þetta augum.
Köflóttu rendurnar fyrir ofan og neðan er dúkurinn á eldhúsborðinu hjá Kára og Steinu og er bara nokkuð smart.

01.10.2006 22:14

Fagrahlíð

Heldurðu að ég hafi ekki brunað upp í Fögruhlíð í góða veðrinu
ásamt Stínu minni og höfðum með okkur þrjá farþega sem samanstóðu af þeim feðgum,Stefáni Vilbergi og Hlyni.Það var allrahanda veður á þessari leið okkar,rigning,sólskyn og þegar komið var í Egilsstaði rigndi bæði og sólaði á sama augnablikinu og ótal regnbogar á lofti. Er ég ekki frá því að ég hafi náð að bruna undir einn þeirra eða svo sagði ég strákunum sem fóru þegar að upphugsa einhverjar óskir sér til handa.
Þegar við lentum í Fögruhlíð var veður kyrrt og haustið skartaði sínu fegursta eins og myndin hér ber með sér.Borðuðum nestið okkar og nutum haustkyrrðarinnar og horfðum á haustið lita gróðurinn í öllum regnbogans litum,lokuðum síðan fyrir vatnið og bjuggum húsið undir veturinn áður en við yfirgáfum staðinn.    

27.09.2006 23:47

Ljós

Þegar farið var að tala um að rökkva allt landið annað kvöld,datt mér í hug að setja þessa mynd inn til að sýna hvernig fallegt haustkvöld getur litið út svona rafmagnslaust.
Þessi mynd er tekin þegar ég var á leiðinni á hið árlega ljósakvöld hjá Petru Sveinsdóttur fyrir skömmu.

23.09.2006 01:30

Haustið

Haustið er komið og grundirnar grána,gulna,roðna og blána í einstökum tilvikum eins og gengur.Börnin eru farin að safnast saman í skólum landsins. Ég er líka kominn í skóla sem er grunnskólinn á Reyðarfirði og þar er líf og fjör.Innan um öll börnin erum við rafmagnskallarnir ásamt trésmiðum blikkurum og fleirum.Þar sem svona mörg verk eru í gangi,finnst mér að stað þess að setja börnin í smíðatíma ætti að gefa þeim kost á að hjálpa til við að draga í rafmagnsrör,dúk og parketleggja eða flota eitt stykki gólf.Það vantar ekki áhugann því að náunginn sem var við síðastnefndu iðju var með tíu krakka ´nánast á bakinu sem vildu vita allt um það sem hann var að gera.Hann leysti greiðlega úr öllum þeirra spurningum á meðan hann lá þarna á hnjánum og dreifði úr steypugutlinu og hafði þolinmæðina +gamansemina á hreinu.      Mér datt þetta bara í hug.

 

17.09.2006 13:49

Blessuð rigningin

Ég elska rigningu.Ég trúi því statt og stöðugt að rigningin og þokan séu kóngsdóttir í álögum og því blessa ég rigninguna öllum stundum.Þó hef ég ákveðnar efasemdir.Hvað gerist ef ég leysi hana úr þessum vítahring?
Verður þetta þá ekki orðin eldgömul kelling og engin rigning, bara þurrkur?Ég bara spyr.

16.09.2006 23:26

Gamla myndin

Mynd þessi er tekin á sjöunda áratug síðustu aldar og sýnir hvað hlutirnir breytast í áranna rás.

12.09.2006 21:12

Frá degi til dags

Ég er kúreki,kem úr austrinu og held til vesturs þangað sem allir fara.Ég og hesturinn erum eitt,fetum þröngan
stíg sem liggur niður eftir gömlum árfarvegi og endar niður á sléttunni.Sólin er farin að lækka flugið og skýn beint framan á mig uns hún hverfur á bak við fjallið stóra sem allir horfa til þegar þeir koma niður á sléttuna.
Myrkrið hellist yfir og ég finn gott rjóður þar ég spretti af hestinum, kveiki eld og fæ mér matarbita.Ligg síðan og
horfi upp í stjörnuflóðið þar til ég sofna.

09.09.2006 22:16

Sunnuhvoll

Hef bætt við nýjum myndum í Sunnuhvolsalbúmið.

07.09.2006 19:15

Viðbót

Hef bætt við myndum í ættarmóta albúmið og gefur að líta vaska drengi og stúlkur  stíga dans og skemmta sér.
á góðri stund.
 Mun bæta við myndum frá snæhvammsdjamminu á næstunni punktur...

02.09.2006 23:59

2.september

Í dag er afmælisdagur móður minnar og í tilefni af því bauð hún öllu slektinu í pönnukökur með þeyttum rjóma
 ásamt ótal tertum og kökum sem runnu viðstöðulaust niður, varð að beita hörku til að rífa mig frá veisluborðinu.
 Ég hélt síðan áfram með klæðninguna og nurlaði upp tveim plötum sem mér finnst töluvert afrek, segi enn og aftur:Margt smátt gerir eitt stórt.Ég verð mjög feginn þegar ég get farið að rífa þetta timburvirki sem stendur
utan í húsinu og farið að lifa aftur eðlilegu og heilbrigðu lífi.
 Þegar við Arnar vorum að byggja þetta ferlíki,kom eitt stykki maður svífandi í fallhlíf og lenti á balanum.eins og ekkert væri.Við feðgar minnugir golfbanninu sem sett var á með pomp og pragt fyrr á árinu,veltum vöngum yfir því hvort ekki væri kominn tími til að banna slíkar lendingar.Þetta er alveg stórhættulegt.

clockhere